Nauðsynlegt að fá niðurstöðu fljótt
Bloggað um fréttina
-
Birgitta JónsdóttirVill Björn Valur fella stjórnina?
-
Benedikta EÞvílikur fíflagangur hjá ríkisstjórnarflokkunum -
-
Arnór BaldvinssonSpilað með spjöldum
-
Jóhannes RagnarssonBúrtíkin gjammar og geltir
-
Guðbjörn JónssonSkipstjóri í taugalosti - á þurru landi.
-
Ingibjörg Guðrún MagnúsdóttirÞrýstingur...
-
Páll BlöndalEr þjóðinni viðbjargandi?
-
Heimir L FjeldstedHornauga
-
Kristin stjórnmálasamtökBjörn Valur virðist ekki kunna að skammast sín
-
Axel Jóhann AxelssonStjórnin farin að örvænta?
-
Loftur Altice ÞorsteinssonTrúðurinn hefur talað !
Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, segir við Bloomberg fréttastofuna, að ef ekkert heyrist frá forseta Íslands í dag um hvenær hann taki afstöðu til Icesave-laganna, hljóti Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, að hafa samband við hann í kvöld og hvetja hann til að taka ákvörðun á hvorn veginn sem er.
„Það þarf að fá niðurstöðu í þetta mál áður en fjármálamarkaðir verða opnaðir á ný í fyrramálið," hefur Bloomberg eftir Birni Val.
Árni Sigurjónsson, skrifstofustjóri skrifstofu forsetans, segir við Bloomberg, að engin ákvörðun hefði verið tekin um hvenær forsetinn tilkynni um niðurstöðu sína. „Hann mun skoða málið í dag. Það er ekkert um þetta að segja eins og er, það er verið að skoða spjöldin."
Björn Valur segir jafnframt við Bloomberg, að staðfesti forsetinn ekki Icesave-lögin þýði það endalok ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs.
Til baka








Senda inn efni



