Uppboð auglýst á 150 eignum
Bloggað um fréttina
-
Sigurður HaraldssonNú fara þeir að koma!
-
Guðmundur BaldurssonEr þetta norræn velferðarstjórn
-
Þórarinn Þ GíslasonNÚ ERU SÍÐUSTU LÍFDAGAR RÍKISSTJÓRNARINNAR,
-
Börkur Hrólfsson,,Gott, látum lýðnum blæða"
-
Þórður Björn SigurðssonHeimavarnarliðið
-
Jón Rúnar IpsenHvar Já Hvar
-
Þórarinn Axel Jónssonþað hlaut að koma að þvi
-
Jakob Falur KristinssonNauðungaruppboð
-
Jakob Þór HaraldssonStjórnvöld vakni!
-
Haraldur HaraldssonUppboð auglýst á 150 eignum//svo fer alþingi i frí
-
Óðinn ÞórissonSkjaldborgin um heimilin
-
Hrappur ÓfeigssonHeimavarnarliðið !!!!
-
UnnarFacebook grúppa
-
Ómar Skapti GíslasonNýtt met
Nauðungaruppboð á yfir 150 fasteignum eru auglýst í Morgunblaðinu í dag. Flest eru uppboðin að byrja og fara þá fram á skrifstofum sýslumannsembættanna í næstu viku. Nokkur framhalds uppboð fara þó fram á staðnum.
Flest uppboðin eru auglýst af sýslumanninum í Hafnarfirði, samtals 63, og ná til eigna í Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi. Meginhlutinn byrjar á skrifstofunni næstkomandi þriðjudag en þau sem fram fara á eignunum sjálfum næstu daga á eftir.
35 uppboð eru auglýst af sýslumanninum í Reykjavík, flest miðvikudaginn 13. janúar.
Sýslumaðurinn í Kópavogi auglýsir 48 uppboð, næstkomandi fimmtudag, 14. janúar.
Þá auglýsir sýslumaður Snæfellinga uppboð á sex fasteignum á fimmtudag.
Þess má geta að ekki eru aðeins fasteignir til sölu því sýslumaðurinn í Reykjavík auglýsir uppboð á þremur óskilahrossum að beiðni umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkur. Uppboðið fer fram í Stóðhúsinu í Víðdal næstkomandi föstudag.
Þar geta menn meðal annars boðið í 3ja vetra brúnskjóttan graðhest.
Til baka








Senda inn efni



