Björn Valur: Umræðan á villigötum
Bloggað um fréttina
-
Haugurinn bloggarAlhæfingar og ótti?
-
Bjarni KjartanssonBjörn trúir Exel - goalseeking hliðinni.
-
Ingibjörg Guðrún MagnúsdóttirHver er menntun þessa manns ?
-
Axel Pétur AxelssonVanhæf ríkisstjórn ! ! !
-
Ómar GeirssonÞað er ekki hungursneyð í Norður Kóeru
-
Þórarinn Þ GíslasonSARDÍNUHVALURINN, BJÖRN VALUR, ÆTLAR AÐ MATREIÐA Í
-
Birgitta JónsdóttirSkjal sem lekið var á wikileaks 30.12.09 - memo af
-
Haraldur HaraldssonBjörn Valur: Umræðan á villigötum/skipstjórin
-
Gísli Foster HjartarsonHver er á villigötum?
-
Jóhannes RagnarssonEnn gjammar búrtíkin óskeikula
-
Reynir W LordSpurning hvort okkur beri að greiða eða ekki
-
Sigurður SveinssonEngin takmörk?
-
Óskar ArnórssonBjörn Valur á Villigötum
-
Halldór Egill GuðnasonSpurning um " prinsip" ?
„Því hefur verið haldið fram að með Icesave-samningunum sé verið að setja óheyrilegar byrðar á komandi kynslóðir Íslendinga, sumir segja um alla framtíð. Ekkert þessu líkt er að finna í öllum þeim gögnum sem Alþingi hefur borist fráfjölmörgum aðilum við umfjöllun málsins, skrifar Björn Valur Gíslason, þingmaður VG á vef sinn. Hann segir umræðuna á villigötum.
Seðlabankinn hefur gefið Alþingi álit sitt á málinu oftar en einu sinni og það hefur fjármálaráðuneytið einnig gert. Sömuleiðis hafa Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn einnig gefið Alþingi álit sín á Icesave-samningunum, IFS og margir fleiri. Hvergi er að finna vísbendingar í þá átt að verið sé að binda komandi kynslóðir Íslendinga óbærandi skuldafangelsi, segir Björn Valur.
„ Versta spá Seðlabanka Íslands gerið ráð fyrir
því að Icesave-samningarnir verði greiddir að fullu árið 2026 og er þá
gert ráð fyrir aflabresti og aðeins heimtist eignir úr búi Landsbankans
fyrir helming skuldanna en ekki 90% eins og gert er ráð fyrir að raunin
verði. Aðrir hafa talið að skuldirnar verði greiddar upp á lánstímanum
að undanskildu IFS sem heldur því fram að í versta tilfelli verði
skuldirnar greiddar árið 2040.
Það er því hjákátlegt að þurfa að hlusta á svokallaða sérfræðinga, innlendra og erlendra, haldi því fram að komandi kynslóðir Íslendinga komi til með að greiða þessar skuldir. Enn grátlegra er þó að hlusta á fjölmiðlafólk láta þessa vitleysu yfir sig ganga án þess að bregðast við sem bendir til þess að fjölmiðlar láti stjórnast af umræðunni gagnrýnislaust. Það er áhyggjuefni ef svo er, ekki síst í komandi kosningabaráttu vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar."
Til baka








Senda inn efni



