[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Hverfisgata, 101 Reykjavík Hverfisgata Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur

mbl.is/Kristján

Innlent | mbl.is | 12.1.2010 | 15:26

Hrygningarstofn loðnu 355 þúsund tonn

Alls mældust 360 þúsund tonn af loðnu í leiðangri hafrannsóknaskipanna Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar  sem lauk í nótt. Þar af mældist hrygningarstofninn um 355 þúsund tonn.

Út af Austfjörðum mældust 180 þúsund tonn, allt hrygningarloðna. Út af Norðausturlandi mældust tæp 120 þúsund tonn, mest hrygningarloðna. Út af vestanverðu Norðurlandi mældust 61 þúsund tonn, þar af 56 þúsund tonn af hrygningarloðnu.

Aflaregla við loðnuveiðar byggir á að skilja 400 þúsund tonn eftir til hrygningar. Hafrannsóknastofnun segir, að þessar mælingar á stærð hrygningarstofnsins séu undir því magni og því leggi stofnunin til að loðnuveiðar verði ekki hafnar að svo stöddu.

Stofnunin segir, að aðstæður til mælinga hafi verið góðar frá því að rannsóknaskipin fóru frá Reykjavík að undanskildu því að hafís hamlaði leit á töluvert stóru svæði vestur og norður af Vestfjörðum, sem kunni að hafa haft áhrif á niðurstöður.

Árni Friðriksson verður áfram við athuganir og mælingar á loðnustofninum ásamt leitarskipi sem væntanlegt er á miðin út af Norðurlandi á morgun, miðvikudag.



© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær