Þverpólitísk nefnd um Icesave
Bloggað um fréttina
-
Egill JóhannssonÍrar horfa til þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi
-
Gunnlaugur BjarnasonDavíð Oddson á að taka við strax!
-
Jakobína Ingunn ÓlafsdóttirKlækjapólitík
-
Þórður Björn SigurðssonBirgitta hjá Mark Keiser um Icesave og
-
Tryggvi Marteinsson15 janúar 2010 - Ekki treysta Framsókn.
-
Axel Þór KolbeinssonHvaða helv. vitleysa
-
Ívar PálssonUmboðslausar flokksforystur
-
Kolbrún HilmarsSama og þegið - takk!
-
Gunnar Th. GunnarssonSteingrímur má ekkert vera að þessu
-
Halla RutErlent viðtal við Birgittu. Sjá hér á "YouTube".
-
Andri Geir Arinbjarnarson"Þjóðstjórn" til að leysa Icesave eins og Davíð
-
Benedikta EEngar viðræður við Breta og Hollendinga - fyrr en
-
Axel Jóhann AxelssonHvernig hljóðar skipunarbréfið?
-
Haraldur HaraldssonÞverpólitísk nefnd um Icesave/orð eru til als
-
Þórhallur HeimissonSolidarnos!
-
Jón SnæbjörnssonVerða 60þúsund löggiltir kjósendur hlunnfarnir ?
-
Ridar T. Falls6 orða saga #718
-
Ingólfur H ÞorleifssonSameinaðir stöndum vér
-
Páll VilhjálmssonSamráð um svik, eða þjóðarsátt?
-
Magnús Þór JónssonSkref í rétta átt!
-
Magnús Helgi BjörgvinssonRétt nálgun!
Reiknað er með að á fundi formanna flokkanna í dag verði gengið frá skipan þverpólitískrar nefndar allra flokka sem hafi umboð til að ræða við Breta og Hollendinga um Icesave ef þjóðirnar lýsa yfir vilja til að hefja formlegar viðræður um málið að nýju.
Fundurinn hefst í forsætisráðuneytinu kl. 15:30. Ekki er reiknað með að formenn flokkanna setji fram sameiginleg samningsmarkmið í komandi viðræðum.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun að stjórnvöld væru í samráði við stjórnarandstöðuna að undirbúa sig undir hugsanlegar viðræður við Breta og Hollendinga. Ekkert lægi þó fyrir um það að þjóðirnar væru tilbúnar til að hefja á ný viðræður við Íslendinga.
Steingrímur verður ekki á fundum formanna flokkanna, en hann er núna á Akureyri þar sem flokksráðsfundur Vinstri grænna hefst síðdegis.
Embættismenn og starfsmenn sendiráða Íslands hafa síðustu daga átt í óformlegum viðræðum við Breta, Hollendinga, Norðurlöndin og fleiri þjóðir um Icesave. Ráðherrar landanna hafa einnig ræðst við. Búist er við að það skýrist um eða eftir helgi hvort formlegar viðræður hefjast á ný um Icesave.
Til baka








Senda inn efni



