[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
Fólkið stökk aftan á bílinn og var ferjað á land. Bíllinn var svo dreginn á þurrt, nokkuð skemmdur.

Fólkið stökk aftan á bílinn og var ferjað á land. Bíllinn var svo dreginn á þurrt, nokkuð skemmdur. Mynd / Bjarni Dan

Innlent | mbl.is | 16.1.2010 | 16:15

Biðu á þaki jeppa úti í Öxará

Jeppi festist í Öxará við Svartagil laust eftir hádegið í dag. Fólkið á jeppanum hafði farið yfir ána snemma dags, til þess að fara í göngutúr í nágrenni Þingvalla, en farið er þessa leið í átt að Botnssúlum og gönguleiðinni Leggjabrjóti. Þegar göngufólkið ætlaði að snúa aftur niður á Þingvelli var hins vegar búið að vaxa mikið í ánni vegna úrkomu og svo fór að þau festu jeppann úti í miðri ánni.

Þau gátu þó óskað eftir hjálp, en svo mikið var í ánni að þau þurftu að hafast við uppi á þaki bílsins þar til hjálpin barst. Hafði þá flætt inn í bílinn og gusaðist eitthvað upp á vélarhlífina.

Tvær björgunarsveitir mættu á staðinn, Ingunn frá Laugarvatni og Tintron úr Grímsnesi. Stórum pallbíl frá björgunarsveitinni var bakkað út í ána og fór fólkið þá yfir á pallinn. Svo tókst að draga jeppann upp úr ánni. Hann hafði þá orðið fyrir töluverðum vatnsskemmdum., að sögn lögreglunnar á Selfossi, sem var fyrst á vettvang.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær