Vél rann út af flugbraut
Flugvél Iceland Express var fyrr í dag fyrir mistök beint inn á akstursbraut sem á ekki að vera í notkun yfir vetrarmánuðina og er því ekki ísvarin, með þeim afleiðingum að hún rann til í hálku og út af brautinni.
„Rétt þegar búið var að beina vélinni inn á brautina áttuðu menn sig á mistökunum, en það var of seint,“ segir Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi Keflavíkurflugvallar.
Hann segir að sandað hafi verið í kringum vélina og hún síðan dregin upp að flugstöðinni. Farþegunum seinkaði um 40 mínútur vegna þessa, en að sögn Friðþórs er ekki er vitað um aðrar tafir í flugi.
Ekki er hálka á þeim akstursbrautum sem eru í notkun, segir Friðþór, en eins og áður sagði var vélinni fyrir mistök beint inn á akstursbraut sem á ekki að vera í notkun.
Vélin var að koma frá Kaupmannahöfn og ný lent á Keflavíkurflugvelli þegar óhappið átti sér stað. Kristín Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Iceland Express, segir að aldrei hafi verið hætta á ferð. „Það var mikil hálka þarna, en vélin var ekki á mikilli ferð þannig að það varð engin hætta og engan sakaði.“
Til baka








Senda inn efni



