Segja sóknaráætlun ganga samkvæmt áætlun
Bloggað um fréttina
-
Ingibjörg Guðrún MagnúsdóttirHverjum hefði dottið það í hug...
-
Gestur GuðjónssonHneykslanleg misnotkun á almannafé
-
Axel Pétur Axelsson14-0 og tíminn liðinn
Vinna við sóknaráætlun ríkisstjórnarinnar, 20/20 Sóknaráætlun, gengur samkvæmt áætlun, að því er segir í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
„Í upphafi árs er lögð áhersla á að fá yfirsýn yfir þá stefnumótun sem gerð hefur verið á ýmsum sviðum samfélagsins frá hruni. Í því skyni hefur forsætisráðherra og stýrihópur 20/20 Sóknaráætlunar boðað til ráðstefnunnar Sóknaráætlun fyrir Ísland: Horft til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag þann 28. janúar næstkomandi þar sem samtök, grasrótarhópar og hagsmunaaðilar fjalla um sóknarfæri og áherslur sem geta aukið lífsgæði og samkeppnishæfni Íslands á komandi árum," samkvæmt fréttatilkynningu.
Til baka








Senda inn efni



