Búið að skjóta ísbjörninn
Bloggað um fréttina
-
Ása SverrisdóttirTil hvess
-
Sigurður HaraldssonATH!
-
Pálmi Reyr ÞorsteinssonVitgrannir umhverfisverndarsinnar
-
Jón Pétur LíndalÞorði ekki að spurja vinnufélagann hvort hann
-
Baldur BorgþórssonSkömm
-
Halldóra Lára ÁsgeirsdóttirÍsbjörn.
-
Jón ArnarTilefni fyrir nýja deild hjá lögreglunni
-
Bergur ThorbergHeimavarnarliðið
-
Guðmundur K ZophoníassonStarfshópar, skipaðir af gáleysi
-
Axel Þór KolbeinssonHættulegasta spendýrið
-
Sigrún Birna GrímsdóttirGreyið að hafa nú villst þangað...
-
Finnur BárðarsonVíkingarnir miklu í norðri
-
Stefán Friðrik StefánssonBlóðugur ísbjarnarblús í Þistilfirði
-
Heimir HilmarssonGeirfuglinn, kindurnar og ísbirnir
-
Karl JónssonÞað eina rétta í stöðunni
-
Einar Þór StrandHvort er mannúðlegra?
-
Kristin stjórnmálasamtökVar nauðsynlegt að drepa hann?
-
Jóhann ElíassonENN EINN BANGSARÆFILLINN Á FERÐINNI...............
-
Gunnar Th. Gunnarsson..... og nú verður allt vitlaust
-
Haraldur BjarnasonHefði ekki mátt doka aðeins við?
-
Axel Jóhann AxelssonAf hverju ekki Húsdýragarðurinn?
-
Þráinn Maríusok!
-
Sólrún Lilja RagnarsdóttirFari þeir sem stóðu að verki til helvítis.
-
Andrés KristjánssonGlæsilegt..
Búið er að skjóta ísbjörninn í Þistilfirði, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Mun bóndi hafa skotið dýrið, samkvæmt heimildum mbl.is. „Það er búið að fella það,“ segir Jón Stefánsson lögregluvarðstjóri á Þórshöfn í samtali við mbl.is.
Hann segir að dýrið hafi verið lítið. Það hafi verið skotið norðan við eyðibýlið Ósland. Dýrið sást fyrst við bæinn Sævarland við Þistilfjörð um kl. 13.
Ágætlega hafi gengið að fella dýrið, sem hafi verið komið í námunda við sauðfé rétt áður en það var skotið. Það var fellt um kl. 15:40 að sögn Umhverfisstofnunar.
Aðspurður segir Jón að ekki hafi sést til fleiri dýra á svæðinu.
Umhverfisstofnun segir, að ákvörðun um að fella björninn hafi verið tekin á grundvelli niðurstöðu starfshóps, sem í kjölfar þess að tveir hvítabirnir gengu á land árið 2008, vann skýrslu um viðbrögð við landgöngu hvítabjarna fyrir umhverfisráðherra. Niðurstaða starfshópsins var sú að fella beri hvítabirni sem ganga á land. Tekin verða sýni úr birninum til rannsókna.
Hvítabirnir eru stærstu landrándýr jarðar, stórhættulegir og óútreiknanlegir. Talið er að heimsstofn hvítabjarna telji 22.000 dýr í dag. Flesta hvítabirni er að finna í Kanada. Hvítabirnir eru á lista IUCN (Alþjóðanáttúruverndarsamtökin) yfir dýr í yfirvofandi hættu. Þrátt fyrir þetta styður hvítabjarnarráð IUCN sjálfbæra nýtingu á öllum 19 stofnum hvítabjarna. Um 800 dýr eru felld árlega.
Til baka








Senda inn efni



