[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
Bandaríski fáninn blaktir hér við Camp Delta fangelsið í hinum umdeildu fangabúðum Bandaríkjahers á  Guantanamo.

Bandaríski fáninn blaktir hér við Camp Delta fangelsið í hinum umdeildu fangabúðum Bandaríkjahers á Guantanamo. AP

Innlent | mbl.is | 1.2.2010 | 06:17

Leggur til að fangar verði fluttir til Íslands

David Hale, stjórnarformaður bandaríska fyrirtækisins Global Economics leggur til í grein sem birtist á vef Finacial Times í dag að fjárhagsvandi Íslands verði leystur með því að senda fanga úr Guantánamo fangabúðunum til Íslands.

Herstöð Bandaríkjamanna verði opnuð á ný á Miðnesheiði og forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, losni úr þeirri klípu að finna vænlegt fangelsi fyrir þá þegar búðunum verður lokað.

Hale leggur til að byggingar á Miðnesheiði verði nýttar til að hýsa fangana sem nú eru í fangabúðum Bandaríkjastjórnar á Kúbu.

Bandarísk stjórnvöld gætu í þakklætisskyni boðið íslensku bönkunum að verða hluti af björgunarpakka bandarískra stjórnvalda. Þau myndu síðan greiða skuldir Íslands í Bretlandi og Holland. Kostnaðurinn við það yrði einungis brot af hagnaði stjórnvalda af hlutabréfum í Goldman Sachs. Líklegt megi telja að fangarnir, sem til að mynda koma frá Afganistan, vilji frekar vera í kalda loftslaginu á Íslandi heldur en hitabeltishitanum á Kúbu.

Segir Hale að ef Bandaríkjaher hefði ekki verið farinn frá Íslandi þá hefðu bandarísk stjórnvöld gripið inn og veitt Íslendingum aðstoð. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði  boðið Íslendingum lán um leið og halla fór undan fæti krónunnar. Fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Hank Paulson, og seðlabankastjóri,  Ben Bernanke, hefðu haft samband við evrópska banka um að halda lánalínum opnum áfram. Varnarmálaráðuneytið hefði komið í veg fyrir að fjármálaráðuneyti Bretlands setti hryðjuverkalög á Ísland til þess að komast yfir eignir stærsta banka Íslands.  Skuldatryggingaálagið hefði haldist stöðugt og ekki hefði verið gert áhlaup á bankana.

Það hefði jafnvel komið til greina að Kaupþing hefði gert yfirtökutilboð í Royal Bank of Scotland.


Hér er hægt að lesa grein Hale í heild en þar rekur hann stöðu mála á Íslandi og veru Bandaríkjahers hér á sínum tíma

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Tengdar fréttir - Icesave hafnað

Innlent | mbl.is | 28.02.2010 | 16:10

Tvær kreppur blasa við

Innlent | mbl.is | 27.02.2010 | 06:59

Times: Hætta á einangrun Íslands

Innlent | mbl.is | 26.02.2010 | 13:18

Telja litlar líkur á samkomulagi

Innlent | mbl.is | 26.02.2010 | 11:36

Vonbrigði að ekki náðist samkomulag

Innlent | mbl.is | 26.02.2010 | 07:27

Ekki nógu gott fyrir Íslendinga

Innlent | mbl.is | 25.02.2010 | 19:03

Fundi lokið án niðurstöðu

Innlent | mbl.is | 25.02.2010 | 15:46

Icesave-fundur hafinn

Innlent | mbl.is | 25.02.2010 | 09:06

InDefence til Hollands

Innlent | mbl.is | 24.02.2010 | 12:47

Um 20% Norðmanna telja Íslendinga eiga að greiða

Innlent | mbl.is | 24.02.2010 | 12:39

Hollendingar bíða átekta

Fleiri tengdar fréttir

Leita í fréttum mbl.is

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær