[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Þjórsá.

Þjórsá. mbl.is/RAX

Innlent | mbl.is | 1.2.2010 | 16:09

Synjar skipulagi við Þjórsá staðfestingar

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, hefur synjað staðfestingar skipulagsbreytingum sem snúa að virkjunum í neðri Þjórsá, þar sem þátttaka Landsvirkjunar í kostnaði sveitarfélaga við skipulagsvinnu hafi stangast á við skipulags- og byggingarlög.

Annars vegar er um að ræða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps, sem ráðuneytið telur sér ekki heimilt að staðfesta. Hins vegar er um að ræða aðalskipulag Flóahrepps 2006-2018, sem ráðuneytið samþykkir að öðru leyti en því sem snýr að virkjunum í neðri Þjórsá.

Yfirlitskort sem sýnir legu Þjórsársveita: Ásahrepps, Flóahrepps, Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Yfirlitskort sem sýnir legu Þjórsársveita: Ásahrepps, Flóahrepps, Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Báðum skipulagstillögunum er synjað staðfestingar með vísan til 34. greinar skipulags- og byggingarlaga, þar sem fjallað er um greiðslu kostnaðar vegna skipulagsvinnu, svo og með tilliti til ákvæðis 1. gr. laganna um réttaröryggi í því sambandi.

Var það niðurstaða ráðuneytisins að við gerð beggja skipulagstillagna hefði sveitarstjórn farið gegn umræddum ákvæðum laga þegar sveitarfélögin gerðu hvort um sig samning við Landsvirkjun um greiðslu kostnaðar af hálfu fyrirtækisins vegna vinnu við skipulagsbreytingarnar. Ákvæði laganna geri ráð fyrir að kostnaður geti aðeins verið greiddur úr viðkomandi sveitarsjóði eða úr Skipulagssjóði. Sveitarstjórnum sé ekki heimilt að semja við aðra aðila eða stofnanir en Skipulagssjóð um greiðslu kostnaðar vegna aðalskipulags.

Þar sem gerð hluta aðalskipulags Flóahrepps 2006-2018 og gerð breytingartillögu varðandi aðalskipulag Skeiða- og Gnúpverjahrepps byggði á ólögmætum forsendum telur ráðuneytið að synja beri þeim hlutum skipulagstillagnanna sem snúa að virkjunum í neðri Þjórsá staðfestingar.

 

PDF-skrá Ákvörðun ráðherra gagnvart Flóahreppi
PDF-skrá Ákvörðun ráðherra gagnvart Skeiða- og Gnúpverjahreppi
© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag