Þið stappið í okkur stálinu
Bloggað um fréttina
-
Iror...hvað með íslenska gullverðlaunahafann?
-
Oddgeir EinarssonTíu milljónir frá ríkisstjórninni
-
Örvar Már MarteinssonAð stappa í okkur stálinu
-
Gestur GuðjónssonUppsögn á samningi ríkisins og ÍSÍ?
-
Einar GuðjónssonGerum stein að Forsætisráðherra
-
ÞJÓÐARSÁLINÆska landsins elskar handboltamenn
-
Páll HöskuldssonRíkisstjórn brenndi af í dauðfæri..
„Þið stappið í okkur stálinu og okkur veitir ekki af því," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, þegar hún ávarpaði íslenska handboltalandsliðið í Laugardalshöll nú undir kvöld. Afhenti hún Handknattleikssambandi Íslands 10 milljóna króna viðurkenningu frá ríkisstjórninni.
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari, þakkaði mótttökurnar og sagði að liðið hefði stundum lent í mótbyr en alltaf komið sterkt til baka. Þótt blásið hafi á móti þjóðinni upp á síðkastið hefði hann trú á að hún komi sterk til baka. „Við eigum að vera stolt af því að vera Íslendingar," sagði hann.
Lögreglan áætlar að um 1000 manns séu samankomnir í Laugardalshöll til að taka á móti landsliðinu.
Til baka








Senda inn efni





