Erfið samningsstaða
Bloggað um fréttina
-
Gunnar GunnarssonHvers vegna er samningsstaðan erfið?
-
Gunnar Th. GunnarssonHér er einföld lausn
-
Hafsteinn Viðar ÁsgeirssonAuðvitað, það eiga nú flestir að geta sagt sér.
-
Ingibjörg Guðrún MagnúsdóttirÞað var nefnilega það..
-
Ómar GeirssonSteingrímur nær ekki kjarna málsins.
-
Guðrún SæmundsdóttirVinnusemi jafnast ekki á við visku.
-
Páll VilhjálmssonVéfrétt bjargar ekki Steingrími J.
-
Magnús Helgi BjörgvinssonSýnist að fólk sé ekki að ná þessari frétt hér á
-
Dolli dropiSéríslensk lyndiseinkunn
-
Gísli Foster HjartarsonKomið gat á tunnuna?
-
Axel Jóhann AxelssonAllt upp á borðið
-
Loftur Altice ÞorsteinssonAlex Jurshevski: Ísland verður að hafna Icesave !
-
Einar GuðjónssonMældu rétt strákur
-
Axel Þór KolbeinssonEnginn vafi
-
Páll HöskuldssonUndarleg söguskýring.
-
Sigurjón BenediktssonNægir "erfið staða" til að útskýra undirlægju og
-
Guðlaugur HermannssonAllt eignasafn Landsbankans á að fara strax til
-
Hreinn SigurðssonGagnsæi og heiðarleiki
-
Asdis SigÆtli það eigi eftir að koma í ljós að
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að hann hafi trú á því að í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis komi fram upplýsingar sem skýri í hversu erfiðri stöðu íslensk stjórnvöld hafa verið við að ná fram hagstæðum samningum í Icesave-málinu.
Steingrímur var spurður um ummæli Arnold Schilder, fyrrum yfirmanns hollenska bankaeftirlitsins, sem sagði fyrir þingnefnd að logið hefði verið að honum um stöðu Landsbankans.
„Það er ýmislegt í bakgrunni málsins sem við höfum ekki getað notað og ekki getað verið með í opinberri umræðu, vegna þess hvað það er viðkvæmt og gæti skaðað hagsmuni landsins. Þannig að maður hefur eiginlega verið með hendur bundnar á bak aftur að verja sig þegar að manni er veist vegna þessa máls. Ég trúi því að innan skamms komi fram ýmsar upplýsingar sem muni skýra í hversu erfiðri stöðu stjórnvöld hafa verið í raun og veru frá upphafi í þessu máli vegna forsögunnar,“ sagði Steingrímur eftir ríkisstjórnarfund.
Til baka








Senda inn efni



