Á 178 km hraða við Kerið
Lögreglan á Selfossi stóð um helgina ökumann að því að aka á 178 km hraða á Biskupstungnavegi við Kerið í Grímsnesi. Segir lögreglan að maðurinn hafi verið einn á ferð í myrkri á vegi sem sé bugðóttur og með blindhæðum. Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.
Í síðustu viku voru 27 ökumenn kærðir fyrir ýmiss konar umferðarlagabrot, þar á meðal ölvunarakstur, akstur undir áhrifum fíkniefna, fyrir að vera ekki með öryggisbelti, að leggja upp á gangstétt með bíl í gangi og hraðakstur.
Þá var í vikunni tilkynnt um innbrot í sumarbústað í Þingvallasveit. Úr bústaðnum var stolið flatskjá. Þá var tilkynnt í morgun um innbrot í bíl á bílastæði við Herjólfsbryggju í Þorlákshöfn. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort einhverju var stolið úr bílnum þar sem ekki hefur náðst til eigandans.
Til baka








Senda inn efni



