Sextán ökumenn í vímu
Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 18-31 árs og 19 ára kona. Tíu voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina.
Sá yngsti í hópnum reyndist þegar hafa verið sviptur ökuleyfi og var auk þess eftirlýstur fyrir aðrar sakir. Farþegi í bíl hans, karl á þrítugsaldri, var sömuleiðis handtekinn en sá var með fíkniefni í fórum sínum.
Átta hinir ölvuðu ökumanna voru stöðvaðir á laugardag og tveir á sunnudag. Sjö voru teknir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn á Álftanesi. Þetta voru átta karlar á aldrinum 18-53 ára og tvær konur, 18 og 19 ára. Þrír þessara ökumanna reyndust jafnframt vera próflausir.
Til baka








Senda inn efni



