[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Sólvallagata, 101 Reykjavík Sólvallagata Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Geitland, 108 Reykjavík Geitland Reykjavík
Fornaströnd, 170 Seltjarnarnes Fornaströnd Seltjarnarnes
Langalína, 210 Garðabær Langalína Garðabær
Kelduhvammur, 220 Hafnarfjörður Kelduhvammur Hafnarfjörður
Lækjarberg, 221 Hafnarfjörður Lækjarberg Hafnarfjörður
Hulduhlíð, 270 Mosfellsbær Hulduhlíð Mosfellsbær
Önundarholt, 801 Selfoss (dreifbýli) Önundarholt Selfoss (dreifbýli)
Sunnubúð við Lönguhlíð.

Sunnubúð við Lönguhlíð.

Innlent | mbl.is | 9.2.2010 | 18:16

18 ára játaði ránið í Sunnubúð

Átján ára piltur hefur játað að hafa framið rán í matvöruversluninni Sunnubúð í Hlíðunum um kvöldmatarleytið á sunnudag, að sögn lögreglu.

Pilturinn var vopnaður hnífi og krafði starfsmann verslunarinnar um peninga og hafði eitthvað af þeim á brott með sér. Pilturinn var handtekinn í Reykjavík í morgun en myndir náðust af honum  á öryggismyndavél sem staðsett er í búðinni. Hann hefur ekki áður komið við sögu hjá lögreglu.

Eysteinn Sigurðsson, eigandi Sunnubúðarinnar við Lönguhlíð, sagði í Morgunblaðinu í dag að ungur maður vopnaður hnífi réðst inn í Sunnubúðina sl. sunnudagskvöld. Að sögn Eysteins var ræninginn vopnaður búrhnífi sem hann dró upp um leið og hann kom inn í búðina.

Sonur Eysteins hlýddi fyrirmælum ræningjans og afhenti honum peningana úr kassanum, en um smáræði var að ræða enda regla að geyma þar ekki háar fjárhæðir. „Þegar maðurinn var farinn út aftur ýtti sonur minn síðan á öryggishnapp og hringdi í Neyðarlínuna,“ sagði Eysteinn. 

Þetta var annað ránið í versluninni á þremur árum, en síðla árs 2007 réðust þrír menn vopnaðir kylfu og exi inn í búðina og höfðu brott með sér peninga og tóbak.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Föstudaginn 12. mars