[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Úr Héraðsdómi Reykjavíkur.

Úr Héraðsdómi Reykjavíkur.

Innlent | mbl.is | 9.2.2010 | 14:32

2 ára fangelsi fyrir íkveikju

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 25 ára gamlan karlmann, Jón Óskar Auðunsson, í 2 ára fangelsi fyrir að hella bensíni yfir bíl á bílastæði í Reykjavík og kveikja í. Var maðurinn talinn hafa valdið almannahættu með þessu athæfi sínu.

Þetta gerðist í október árið 2008 á bílastæði við Leifsgötu. Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi en ekki kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur hvað manninum gekk til. Bíllinn, sem hann kveikti í, var fast við íbúðarhús og við hlið annars bíls. Segir dómurinn að manninum hafi mátt vera ljóst að íkveikjan mundi hafa í för með sér augljósa hættu á yfirgripsmikilli eyðingu á eignum annarra manna. 

Maðurinn var ákærður fyrir að valda almannahættu. Fengnir voru matsmenn sem komust að þeirri niðurstöðu, að telja mætti öruggt að íkveikjan hafi leitt til almannahættu að því er varðaði umfangsmikla eyðingu á tveimur bílum og einnig á húseigninni og lausafjármunum í Leifsgötu 22 hefði eldurinn brunnið áfram og borist inn í húsið í kjallara og á 1. hæð.  Hins vegar töldu matsmennirnir ekki, að íbúar í húsinu og næsta húsi hafi verið í hættu.  

Maðurinn hefur áður verið níu sinnum sektaður fyrir umferðarlagabrot og þrisvar sinnum sviptur ökurétti.  Eftir að hann kveikti í bílnum hefur hann verið sektaður fyrir skemmdarverk í maí á síðasta ári var hann dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir ölvunarakstur og réttindaleysi við akstur og sviptur ökurétti í 3 ár og 6 mánuði.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag