[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Akurholt, 270 Mosfellsbær Akurholt Mosfellsbær
Flyðrugrandi, 107 Reykjavík Flyðrugrandi Reykjavík
Héraðsdómur Reykjavíkur.

Héraðsdómur Reykjavíkur. mbl.is/Þorkell

Innlent | mbl.is | 9.2.2010 | 15:04

3 ára fangelsi fyrir nauðgun og sifjaspell

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 3 ára fangelsi fyrir nauðgun og sifjaspell en hann nauðgaði 15 ára gamalli systur sinni. Maðurinn var einnig dæmdur fyrir fjölmörg önnur hegningarlagabrot en sýknaður af annarri nauðgunarákæru.

Maðurinn var fundinn sekur um að hafa í mars 2008 nauðgað 15 ára systur sinni, sem hafði áður neytt vímuefnisins LSD og gat ekki spornað gegn athöfnum mannsins vegna vímu og svefndrunga. Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir að útvega stúlkunni vímuefnið.  Hann var dæmdur til að greiða henni 1,1 milljón króna í bætur.

Maðurinn var hins vegar sýknaður af ákæru fyrir að nauðga annarri stúlku í maí á þessu ári. Taldi dómurinn verulegan vafa leika á sekt mannsins.

Hann var hins vegar fundinn sekur um fjölda annarra brota, aðallega innbrot og þjófnaði og fíkniefnabrot. Hann á að baki talsverðan brotaferil. 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í gær