50 óku of hratt, flest karlar
Tæplega fimmtíu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina en í allra grófustu brotunum var ekið á 50-60 km hraða umfram leyfðan hámarkshraða. Að sögn lögreglu var mikill meirihluti hinna brotlegu karlar, langflestir á þrítugsaldri en nokkrir eru undir tvítugu. Níu konur voru stöðvaðar í þessu hraðaeftirliti en þær eru á aldrinum 18-44 ára.
Eitt brot var öllu grófara en önnur, en þar átti í hlut 17 ára piltur sem var stöðvaður á Hringbraut. Þar mældist bíll hans á 121 km hraða á móts við Bjarkargötu. Kauði var að sögn lögreglu sviptur ökuleyfi til bráðabirgða og svo var einnig um fleiri ökumenn þessa helgina.
Þá vakti líka athygli lögreglu það kæruleysi sumra ökumanna sem hirða ekki um að endurnýja ökuskírteinið og eins hinna sem ekki hafa það meðferðis.
Til baka








Senda inn efni


