
Frá lyfjaframleiðslu Actavis.
Actavis sendir lyf og fé til Haítí
Lyfjafyrirtækið Actavis hefur ákveðið að styrkja hjálparstarfið í kjölfar jarðskjálftans á Haítí um meira en 270 milljónir króna, í formi fjárstyrkja og lyfja.
Lyfin eru send frá ýmsum löndum þar sem Actavis starfar, meðal annars Íslandi, Búlgaríu, Tyrklandi, Bretlandi og Bandaríkjunum. Hluti framlagsins er þegar kominn til viðtakenda. Þar á meðal er 10.000 dollara fjárstyrkur til bandaríska Rauða krossins og lyf frá Actavis í Bandaríkjunum, og meira en 600-þúsund töflur af samheitalyfjum sem Actavis á Íslandi sendi SOS barnaþorpunum.
Lyfin voru send til Dóminíska lýðveldisins og þaðan landleiðina til Haítí, sem er á sömu eyju. Unnið er að flutningi lyfja frá fleiri löndum. Meðal lyfjanna sem fyrst voru send eru þau sem mest þörf er fyrir á hamfarasvæðunum, svo sem bólgueyðandi lyf og verkjalyf.
Til baka








Senda inn efni

