[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 8.9.10
3 10 28 30 39 43
14 44   42
Jóker
1 4 9 0 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar
Fátækt

Fasteignir:
mest skoðað

Sörlaskjól, 107 Reykjavík Sörlaskjól Reykjavík
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Stararimi, 112 Reykjavík Stararimi Reykjavík
Bauganes, 101 Reykjavík Bauganes Reykjavík
Logafold, 112 Reykjavík Logafold Reykjavík
Lindarflöt, 210 Garðabær Lindarflöt Garðabær
Reynimelur, 107 Reykjavík Reynimelur Reykjavík
Bæjarlind, 201 Kópavogur Bæjarlind Kópavogur
Básahraun, 680 Þórshöfn Básahraun Þórshöfn
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Innlent | Morgunblaðið | 9.2.2010 | 05:30

Aflinn úr Vöðlavík eins og best gerist

Bátur sem gerður er út á sæbjúgu hefur fengið góðan afla við Austfirði að undanförnu. „Hann hefur verið að koma með upp í sex tonn eftir daginn. Þetta er eins og best gerist,“ segir Atli Jóhannesson hjá Ásfiski á Eskifirði sem hreinsar afurðirnar fyrir útgerðarmanninn.

Útgerðarfyrirtækið Hafnarnes Ver í Þorlákshöfn hefur leitað að sæbjúgnamiðum við suðurströnd landsins og Austfirði. Nokkuð fannst en bestu miðin sem hingað til hafa fundist á þessu svæði eru í Vöðlavík, norðan við Reyðarfjörð. Atli segir að vel hafi gengið að undanförnu. „Það er aðallega veðráttan sem hefur heft veiðina,“ segir hann en austanáttir hafa verið ríkjandi.

Útgerðin notar Sæfara ÁR-170 við veiðarnar. Aflanum er landað á Eskifirði og hann fluttur til Þorlákshafnar til frystingar. Útgerðin er að velta því fyrir sér að frysta sæbjúgun fyrir austan. Atli segir að það mál sé enn á frumstigi.

Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

 

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær