[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Hverfisgata, 101 Reykjavík Hverfisgata Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur

mbl.is/Þorkell

Innlent | mbl.is | 9.2.2010 | 16:05

Fær ekki að gefa einkaskýrslu

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu fréttastjóra og fréttamanns Stöðvar 2 um að heimildarmaður þeirra fyrir frétt um fjármagnsflutninga Björgólfs Thors Björgólfssonar, Björgólfs Guðmundssonar og Magnúsar Þorsteinssonar  fái að gefa skýrslu einslega fyrir dómara í málinu án þess að nafn hans komi fram.

Þremenningarnir stefndu þeim Gunnari Erni Jónssyni og Óskari Hrafni Þorvaldssyni fyrir meiðyrði.  Í úrskurði dómsins er haft eftir lögmanni blaðamannanna, að ummælin í fréttinni hafi byggst  á upplýsingum frá heimildarmanni. Blaðamennirnir eigi afar brýna hagsmuni af því að heimildarmaðurinn gefi skýrslu um málsatvik fyrir dóminum, en hann muni ekki gefa skýrslu fyrir dóminum, nema slík skýrslugjöf fari fram einslega fyrir dómara og þá án þess að nafn hans verði tilgreint í dómi eða gefið upp öðrum en dómara og votti. Telji heimildarmaðurinn að fjárhagslegum hagsmunum hans, félagslegum sem og hagsmunum sem tengist atvinnufrelsi verði stefnt í hættu ef hann gefi skýrslu í heyranda hljóði fyrir dóminum. 

Lögmenn þeirra, sem höfðuðu málin gegn blaðamönnunum, töldu þessa kröfu ekki eiga sér neina stoð í lögum  en hún brjóti hins vegar gegn mörgum ákvæðum íslenskra laga, sem og gegn ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu um réttláta málsmeðferð. 

Dómurinn tók undir þau sjónarmið og sagði, að krafan fæli í raun í sér útilokun annarra en blaðamannanna sjálfra til að spyrja vitni nokkurs sem máli geti skipt. Ef fallist yrði á kröfuna væri aðilum máls þessa verulega mismunað og þannig brotið gegn rétti Björgólfsfeðga og Magnúsar  til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi.

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær