[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Norskir vítisenglar hafa oft reynt að komast hingað til lands.

Norskir vítisenglar hafa oft reynt að komast hingað til lands.

Innlent | mbl.is | 9.2.2010 | 23:16

Norski vítisengillinn hefur komið hingað áður

Leif Ivar Kristiansen, norski vítisengillinn sem vísað var frá landinu í morgun, hefur komið hingað til lands áður án hindrana, að því er norskir fjölmiðlar sögðu í kvöld. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að síðan hafi íslensk stjórnvöld hert eftirlit með þessum samtökum.

Kristiansen kom til Íslands í gær ásamt lögmanninum Morten Furuholmen. Tilgangurinn með ferðinni var að höfða mál gegn íslenska ríkinu vegna annars vítisengils, sem reyndi að koma til Íslands í síðustu viku en var þá vísað úr landi, að sögn fréttavefjar VG. 

Blaðið hefur eftir íslenskum Furuholmen að ef íslensk stjórnvöld vilji gera undantekningu frá reglum um frjáls ferðalög þá verði þau að geta sýnt fram á að raunveruleg og bráð ógn steðji að samfélaginu og öryggi landsins. „Það er ekki nóg að viðkomandi sé félagi í Vítisenglum til að víkja honum úr landi," segir lögmaðurinn.

Ætlaði að hitta félaga í MC Iceland

Furuholmen staðfestir við Aftenposten, að Kristiansen hafi ætlað að hitta félaga í MC Iceland, áður Fáfni, en að sögn ríkislögreglustjóraembættisins stendur til að íslenska félagið fái fullgilda aðild að Hells Angels samtökunum, sem eru sögð skipulögð glæpasamtök. Inngönguferli MC Iceland hafi verið stýrt frá Hells Angels-samtökunum í Noregi.

Aftenposten segir að Kristiansen hafi verið handtekinn í Ósló í tengslum við umfangsmiklar lögregluaðgerðir gegn Vítisenglum í Þrándheimi. Hann var þá grunaður um stórfellt fíkniefnabrot. Þá fannst mikill fjöldi vopna í aðgerðum lögreglu.  

Í gær hélt lögreglan áfram aðgerðum gegn Vítisenglum í Ósló og Þrándheimi.  


 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær