[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 8.9.10
3 10 28 30 39 43
14 44   42
Jóker
1 4 9 0 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar
Fátækt

Fasteignir:
mest skoðað

Sörlaskjól, 107 Reykjavík Sörlaskjól Reykjavík
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Stararimi, 112 Reykjavík Stararimi Reykjavík
Bauganes, 101 Reykjavík Bauganes Reykjavík
Logafold, 112 Reykjavík Logafold Reykjavík
Lindarflöt, 210 Garðabær Lindarflöt Garðabær
Reynimelur, 107 Reykjavík Reynimelur Reykjavík
Bæjarlind, 201 Kópavogur Bæjarlind Kópavogur
Básahraun, 680 Þórshöfn Básahraun Þórshöfn
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík

Reuters

Innlent | Morgunblaðið | 9.2.2010 | 07:10

„Kasínó er raunhæfur kostur“

Eftir Andra Karl andri@mbl.is

„Kasínó er alþjóðlegt orð og spilavíti svo hrikalega neikvætt að maður veltir fyrir sér hvaða áróðursmeistari fann það upp,“ segir Arnar Gunnlaugsson hjá Ábyrgri spilamennsku ehf., spurður um það hvers vegna aðeins er rætt um kasínó í sambandi við hugmynd félagsins um að setja á fót spilavíti í húsakynnum hótelsins Hilton Reykjavík Nordica.

Ábyrg spilamennska er að jöfnum hlutum í eigu Icelandair Hotels, sem rekur ofangreint hótel, og Arnars og Bjarka Gunnlaugssona, sem þekktastir eru fyrir kunnáttu sína í knattspyrnu. Hugmynd um kasínó var kynnt í iðnaðarráðuneytinu og dómsmálaráðuneytinu. Í kjölfarið hefur verið óskað eftir umsögnum fagaðila.

„Við höfum unnið að þessu máli mjög lengi og vorum í raun að bíða eftir rétta tækifærinu. Kasínó er raunhæfur kostur og ef ekki núna þá síðar,“ segir Arnar og bendir á að sama umræða hafi farið fram í Danmörku í lok níunda áratugar síðustu aldar. „Þar var ákveðið að lögleiða rekstur kasínós með ströngum skilyrðum og hárri skattlagningu.“

Arnar segir að reynsla Dana sé sú að ólöglegir spilaklúbbar lögðust af og viðskiptavinir þeirra sóttu þess í stað í kasínóin. Hann bendir á að ólöglegum spilaklúbbum hafi fjölgað mikið hér á landi, og netspilun einnig aukist. Af þeirri spilamennsku fái ríkið engar skatttekjur.

Arnar segir um of einblínt á neikvæðar hliðar spilamennskunnar, án þess þó að hann geri lítið úr spilafíkn. Hins vegar sé hægt að hafa meira eftirlit með spilamennsku og auðveldara að koma þeim til hjálpar sem eiga við spilafíkn að stríða.

Talið er að á milli fjörutíu og sjötíu störf skapist verði hugmyndinni veitt brautargengi, en til þess þarf lagabreytingu. Ekki náðist í Rögnu Árnadóttur, dómsmálaráðherra, við vinnslu fréttarinnar.

  • Á milli fjörutíu og sjötíu störf skapast með opnun spilavítis · Sama hugmynd var til umræðu í Danmörku fyrir tuttugu árum · Sú ákvörðun var tekin að leyfa fjárhættuspil með skilyrðum

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær