Kjarval seldist á 1,5 milljónir
Málverk eftir Jóhannes S. Kjarval var slegið á 1.500.000 kr. á uppboði listmunasölunnar Gallerís Foldar í gærkvöldi. Uppboðið gekk vonum framar, að mati Jóhanns Ágústs Hansen listmunasala og uppboðshaldara.
Hæsta boð var í málverk Jóhannesar S. Kjarval af blómvendi og var það slegið fyrir 1.500 þúsund. Með gjöldum þarf kaupandinn að reiða af hendi rúmlega 1,8 milljónir fyrir verkið. Kaupandinn er útlendur en Jóhann taldi allt eins líklegt að málverkið verði áfram hér á landi.
Jóhann sagði að þetta málverk hafi verið selt árið 2005 og var það þá slegið á 690 þúsund krónur. Hann sagði að verðgildi myndarinnar hafi því aukist um 117% á þessum árum.
Jóhann sagði að uppboðssalurinn við Rauðarárstíg hafi verið fullsetinn í gær og 140-150 gestir mættir. Nokkuð gott verð fékkst fyrir listaverkin sem seldust. „Það lítur út fyrir að það sé að hægja á þeirri miklu niðursveiflu sem verið hefur á verði listaverka síðustu tvö árin,“ sagði Jóhann.
Boðin voru upp 100 verk. Jóhann sagði að verk eftir ýmsa starfandi listamenn hafi selst dýrar en fyrir ásett viðmiðunarverð. Hann nefndi t.d. verk eftir Tryggva Ólafsson, Kristján Davíðsson og Kjartan Guðjónsson í því sambandi.
„Þegar við verðmetum svona verk þá miðum við verð sem gengið hafa í beinni sölu. Við seldum verk eftir alla þessa yfir matsverði. Kannski er það merki um aukið traust á markaðnum. Yngra fólk er líka farið að mæta í auknum mæli á uppboðin,“ sagði Jóhann.
Á uppboðsskránni var uppstoppaður íslenskur fálki sem verðmetinn var á 150 - 200 þúsund krónur. Jóhann sagði að fálkinn hafi ekki selst og verið sleginn inn sem kallað er. Jóhann sagði að um sé að ræða mjög gamlan grip. Hann hafi verið stoppaður upp áður en það var bannað með lögum og engin athugasemd verið gerð.
Til baka








Senda inn efni




