[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Gríðarlegt tjón varð í jarðskjálftanum á Haiti.

Gríðarlegt tjón varð í jarðskjálftanum á Haiti. ELIANA APONTE

Innlent | mbl.is | 9.2.2010 | 11:47

Rauði krossinn sendir fólk til Haiti

Þrír íslenskir sérfræðingar í uppbyggingarteymi Alþjóða Rauða krossins fara í dag til Haítí til að taka þátt í uppbyggingunni eftir jarðskjálftann sem þar varð 12. janúar.

Sigríður Þormar, Hrafnhildur Sverrisdóttir og David Lynch halda áleiðis til Haítí í dag. Þau eru fulltrúar Rauða kross Íslands í alþjóðlegu teymi sem skipuleggur uppbyggingarstarf Rauða kross hreyfingarinnar á Haítí á næstu þremur árum. Teymið samanstendur af 24 sérfræðingum í heilbrigðismálum, birgðastjórnun, neyðarvörnum, neyðarskýlum, lífsafkomu og uppbyggingu samfélaga eftir áföll.

Sigríður Þormar er hjúkrunarfræðingur og sálfræðingur með áratugareynslu af áfallahjálp og sálrænum stuðningi í kjölfar hamfara. Hún hefur starfað fyrir Rauða kross Íslands og Alþjóða Rauða krossinn víða um heim, og þjálfað sjálfboðaliða fjölda landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans í sálrænum stuðningi.

Hrafnhildur Sverrisdóttir er sérfræðingur í mannréttindum og þróunarfræðum. Hún var sendifulltrúi Rauða kross Íslands á Fílabeinsströndinni og Búrúndí, starfaði með íslensku friðargæslunni í Afganistan, og með Sameinuðu þjóðunum í Makedóníu og Kosovó.

David Lynch hefur starfað á alþjóðasviði Rauða kross Íslands sem verkefnisstjóri í neyðarvörnum og neyðarviðbrögðum í kjölfar hamfara, og á neyðarvarnaskrifstofu Alþjóða Rauða krossins í Genf. Hann var sendifulltrúi Rauða kross Íslands um árabil í Asíu, Miðausturlöndum, Tsétsníu og Kákasuslöndunum.

Hlutverk þremenninganna er að veita faglega ráðgjöf hvert á sínu sviði og skipuleggja uppbyggingarstarf Rauða kross hreyfingarinnar á Haítí að neyðaraðgerðum loknum. Teymið mun kortleggja getu annarra hjálparsamtaka, stjórnvalda og Rauða krossins á Haítí, og hvar sérfræðiþekking og mannauður Rauða kross hreyfingarinnar nýtist best í uppbyggingunni. Áætlun þeirra mun liggja fyrir innan 3 vikna.

Fyrir eru 3 sendifulltrúar Rauða kross Íslands á Haíti: Hlín Baldvinsdóttir fjármálastjóri neyðaraðgerða Alþjóða Rauða krossins, Friðbjörn Sigurðsson læknir, og Lilja Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur. Maríanna Csillag hjúkrunarfræðingur fer einnig til starfa á Haítí nú um helgina.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag