Toyota á Íslandi innkallar Prius
Toyota í Evrópu hefur tilkynnt um innköllun á nýjustu útgáfu af Prius. Alls verða 52.903 bílar kallaðir inn vegna uppfærslu sem gera þarf á hugbúnaði í ABS-bremsukerfi bílsins.
Þegar hefur verið haft samband við eigendur þeirra bíla sem kalla þarf inn hér á landi og þeir boðaðir með bíla sína til uppfærslu.
Að sögn Toyota á Íslandi er viðgerðin vegna tilkynninga um óstöðuga hemlunartilfinningu við jafna en ákveðna hemlun á lausu vegyfirborði þegar ABS hemlastýrikerfið yfirtekur hemlastjórnunina. Viðgerðin felist í uppfærslu á forriti í ABS stjórntölvu.
Uppfærða forritið flýtir innkomu ABS stjórnunarinnar þegar hemlað er á lausu vegyfirborði.
Toyota segir, að engin slys hafi orðið í Evrópu vegna þessa svo vitað sé. Innköllunin eigi ekki við um eldri gerðir Prius og aðrar gerðir af Toyota eða Lexus.
Til baka








Senda inn efni



