Væta við suðurströndina og suðvestanlands
Suðaustlæg eða breytileg átt verður á landinu í dag, 3-8 m/s. Léttskýjað eða bjartviðri á norðanverðu landinu, en annars skýjað að mestu.
Sums staðar dálítil væta við suðurströndina og einnig suðvestanlands. Hiti 0 til 6 stig, en frost 0 til 9 stig á Norður- og Austurlandi, kaldast í innsveitum.
Á höfuðborgarsvæðinu verður austan og suðaustan 3-8 m/s og skýjað að mestu, en úrkomulítið. Hiti 2 til 6 stig.
Á miðvikudag, verður suðaustan 5-10 m/s á landinu, skýjað og lítilsháttar væta
suðvestanlands, en annars hægari vindur og léttskýjað með köflum. Hiti 0 til
6 stig á Suður- og Vesturlandi, en annars frost 0 til 8 stig.
Til baka







Senda inn efni

