Fréttaskýring: Spáð 200 milljarða sölutekjum álvera á árinu

Álver Norðuráls í Hvalfirði.
Álver Norðuráls í Hvalfirði. Árni Sæberg

Samanlagðar útflutningstekjur álveranna þriggja á seinasta ári jafngilda nálægt 177 milljörðum króna. Útlitið er að flestra mati ennþá betra á þessu ári og gera spár ráð fyrir að áliðnaðurinn á Íslandi muni skila fyrirtækjunum jafnvirði um 200 milljarða kr. í útflutningstekjum á yfirstandandi ári. Þetta slagar upp í þær fjárhæðir sem sjávarútvegurinn skilar í þjóðarbúið en tekjur af útflutningi sjávarafurða í fyrra voru tæplega 210 milljarðar.

Iðnaðarvörur voru rúm 48% í útflutningi landsmanna í fyrra og var það annað árið í röð sem hlutdeild iðnaðarvara er meiri en sjávarafurða.

Þessar gjaldeyristekjur skila sér þó alls ekki allar inn í þjóðarbúið. Áætlað hefur verið að nálægt 40% útflutningsteknanna fari úr landi í kaup á aðföngum og rekstrarvörum auk arðgreiðslna en stór hluti situr hér eftir í greiðslum fyrir raforkuna, vinnulaun og skattgreiðslur auk þjónustuviðskipta við fjölmarga aðila og til viðhalds og endurbóta. Í skýrslu iðnaðarráðuneytisins á seinasta ári um áhrif stóriðjuframkvæmda á íslenskt efnahagslíf kom fram að kaup álfyrirtækjanna þriggja á innlendri vöru og þjónustu árið 2008 hafi numið um 25 milljörðum svo dæmi séu nefnd.

Álver Rio Tinto Alcan í Straumsvík flutti í fyrra út 195.065 tonn af áli. Samkvæmt upplýsingum Ólafs Teits Guðnasonar, framkvæmdastjóra samskiptasviðs álversins, er það heldur meira en framleitt var í kerskálum sem var um það bil 188 þúsund tonn. Mismunurinn felst einkum í því að álverið keypti ál m.a. af Norðuráli til að anna eftirspurn. Steypuskálinn í álverinu framleiðir fjölmargar mismunandi málmblöndur úr hrááli eftir nákvæmri forskrift erlendra viðskiptavina. Sölutekjur af útflutningnum í fyrra voru 355,8 milljónir dollara. Ef mið er tekið af miðgengi Seðlabankans yfir árið jafngilda sölutekjur álversins í Straumsvík 43,98 milljörðum króna.

Spá hærra álverði í ár

Útflutningur Norðuráls á Grundartanga á seinasta ári skilaði sem svarar til 58-59 milljarða króna í útflutningstekjum, samkvæmt upplýsingum Ragnars Guðmundssonar forstjóra. Fram kom í nýliðinni viku að útflutningur Alcoa Fjarðaáls á síðasta ári nam tæplega 600 milljónum bandaríkjadala, sem jafngildir um 74 milljörðum íslenskra króna, miðað við núverandi gengi. Flutt voru út rúmlega 349 þúsund tonn af hreinu áli, álblöndum og álvírum. Verðmæti útflutnings Alcoa Fjarðaáls í fyrra nam því rúmlega 1,4 milljörðum króna á viku. Fyrir hvert tonn af áli fengust að meðaltali 1.708 bandaríkjadalir.

Miklar sveiflur hafa verið á heimsmarkaðsverði á áli á umliðnum misserum. Viðmiðunarverð fór niður fyrir 1.300 dali í upphafi árs 2009 en í lok ársins var það komið yfir 2.300 dali.

Í Peningamálum Seðlabankans kemur fram að áætlað er að álverð verði um 27% hærra á þessu ári en á liðnu ári. Fréttir úr áliðnaðinum benda í sömu átt. Spáð er um 10% aukningu á spurn eftir áli 2010.

Rio Tinto birti í vikunni uppgjör fyrir 2009. Þar kom fram það mat yfirstjórnenda að eftirspurn eftir áli væri að aukast og langtímahorfur væru góðar, ekki síst með hliðsjón af spám um áframhaldandi vöxt í Kína, en verðsveiflur gætu þó haldið áfram til skemmri tíma litið.Álframleiðsla Alcoa Fjarðaáls var tæplega 3.000 tonnum meiri í fyrra en áætlanir gerðu ráð fyrir, eða rúmlega 349 þúsund tonn samkvæmt upplýsingum fyrirtækisins. Að meðaltali voru framleidd tæp þrjú tonn af áli í hverju keri á dag.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert