Ófært undir Hafnarfjalli

Kortið á vef Vegagerðarinnar sýnir vel óveðrið á Vesturlandi.
Kortið á vef Vegagerðarinnar sýnir vel óveðrið á Vesturlandi. vegagerdin.is

Ófært er undir Hafnarfjalli og ekkert ferðaveður þar. Einnig er
ófært  á Siglufjarðarvegi, um Þröskulda og í Reykhólasveit. Vegagerðin varar við stórhríð á Holavörðuheiði og í ofanverðum Borgarfirði. Þar er heldur ekki neitt ferðaveður.

Snjóþekja og snjókoma er á Reykjanesbraut og raunar á öllu suðvesturhorninu. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Mosfellsheiði.

Á Suðurlandi eru hálkublettir og éljagangur á Sandskeiði, Hellisheiði og í Þrengslum. Á öðrum leiðum eru hálkublettir, éljagangur og sumstaðar snjóþekja.

Þæfingsfærð og skafrenningur er í uppsveitum Borgarfjarðar og á Bröttubrekku. Hálkublettir og skafrenningur er svo í Borgarfirði og á Snæfellsnesi.

Á Vestfjörðum er hálka, hálkublettir, éljagangur eða skafrenningur á flestum leiðum. Þungfært og stórhríð er á Steingrímsfjarðarheiði og  á Ströndum og þar er ekki ferðaveður. Ófært er um Þröskulda og í Reykhólasveit.  Þæfingsfærð er frá Kollafirði að Þorskafirði.

Á Norðurlandi vestra er ófært á Siglufjarðarvegi. Hálka og skafrenningur er  Þverárfjalli og í Langadal. Í Skagafirði eru hálkublettir og éljagangur. Á Öxnadalsheiði er skafrenningur og snjóþekja. Norðaustanlands er éljagangur og hálka í öllum Eyjafirðinum og á Víkurskarði. Éljagangur og snjóþekja er svo við Mývatn en hálka ásamt einhverjum skafrenning er á flestum öðrum leiðum.

Á Austurlandi eru hálkublettir á Möðrudalsöræfum og snjóþekja á Vopnafjarðarheiði. Snjóþekja er mjög víða eins og til að mynda á Fjarðarheiði og á Vatnsskarði eystra. Hálka er þó á Fagradal og í Oddskarði en svo eru hálkublettir frá Fáskrúðsfirði að Höfn.

Suðaustanlands er snjóþekja eða hálkublettir ásamt einhverjum éljagangi. Þæfingsfærð og snjókoma er á Mýrdalssandi og á
Reynisfjalli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert