Nóttin róleg í nágrenni eldstöðvanna

Rétt fyrir klukkan eitt í nótt varð örlítil aukning á vatnsrennsli í Markarfljóti og barst nokkur krapi með en þegar leið að morgni hafði vatnsmagn ekki aukist frekar í ánni. 

Að sögn vettvangsstjórnar almannavarna á Hvolsvelli hefur nóttin annars verið mjög róleg. Frá eldstöðvunum megi þó enn finna markvissan takt umbrotanna.

Vetur og sumar frusu saman undir Eyjafjöllum og er nú mikill snjór og hálka á veginum austan við Markarfljót. Má í dag búast við öskufalli í grennd við eldstöðina og vestur af henni.

Í tilefni sumardagsins fyrsta verður í dag opið hús og veisla í Heimalandi frá kl. 11-17. Verða veitingar í boði SS, Emmess ís og Ölgerðarinnar. Rangárvallasýsludeild Rauða Krossins sér um að halda utan um samkomuna líkt og undanfarna daga í Heimalandi


Eldgosið í gær.
Eldgosið í gær. mbl.is/RAX
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert