Reykjavíkurflugvöllur kæmist fyrir í aðalgígnum

Gígurinn í Eyjafjallajökli til hægri. Á myndinni til vinstri hefur …
Gígurinn í Eyjafjallajökli til hægri. Á myndinni til vinstri hefur mynd af Reykjavíkurflugvelli verið sett yfir gíginn. mynd/Landhelgisgæslan

Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF flaug yfir gossvæðið í gær. Í flugskýrslu áhafnarinnar er stærð gígsins á Eyjafjallajökli sett fram í nýtt samhengi með myndum úr ratsjá. Segir þar að Reykjavíkurflugvöllur passi ágætlega inn í aðalgíg jökulsins. 

Í flugskýrslunni segir einnig, að myndir hafi verið teknar af yfirborði Mýrdalsjökuls þar sem Katla liggur undir. Ekkert sem geti talist óvenjulegt sé að sjá þar. Á mynd sem fylgir sjást þó tvær dældir nánast í miðjum jöklinum.

Dældirnar í Mýrdalsjökli sjást fyrir miðri mynd.
Dældirnar í Mýrdalsjökli sjást fyrir miðri mynd. mynd/Landhelgisgæslan
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert