Tveir teikna skopmyndir Morgunblaðsins

Kristinn Pálsson hefur feril sinn sem skopmyndateiknari á síðum Morgunblaðsins.
Kristinn Pálsson hefur feril sinn sem skopmyndateiknari á síðum Morgunblaðsins.

Helgi Sigurðsson og Kristinn Pálsson báru sigur úr býtum í samkeppni Morgunblaðsins um skopteikningar, sem staðið hefur yfir síðustu vikur.

Þátttaka í keppninni var vonum framar, en 25 manns tóku þátt og sendi hver teiknari nokkrar myndir. Þær eru enn til sýnis á fréttavefnum mbl.is. Margir þátttakendur voru mjög hæfileikaríkir og reyndist vandasamt verk að velja sigurvegara.

Helgi ríður á vaðið í blaðinu í dag, á hefðbundnum stað skopteikninga í blaðinu, við hlið Staksteina á blaðsíðu átta. Myndir hans munu framvegis birtast á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum.

Kristinn er ungur að árum, 18 ára gamall nemandi við Verzlunarskóla Íslands og teiknar nú í fyrsta sinn fyrir dagblað. Hans myndir munu birtast á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Hann sendi tíu myndir í keppnina.

http://mbl.is/skopteiknari

Sjá nánar um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Helgi Sigurðsson hefur um árabil starfað sem teiknari og hönnuður.
Helgi Sigurðsson hefur um árabil starfað sem teiknari og hönnuður.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert