Guðlaugur fékk hæstu styrkina frá Baugi, Fons og FL Group

Guðlaugur Þór Þórðarson.
Guðlaugur Þór Þórðarson.

Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, hefur birt lista yfir hluta þeirra fyrirtækja, sem styrktu hann fyrir prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík árið 2006. Fram kemur að Baugur, Fons og FL Group veittu Guðlaugi Þór 2 milljónir króna hvert fyrirtæki en alls fékk hann 24,8 milljónir króna í styrki.

Guðlaugur segir í tilkynningu, að í viðtali í Kastljósi nýlega hafi hann sagt, að hann myndi kanna hvort þeir aðilar sem styrktu framboð hans  samþykktu að verða nafngreindir. Sumir hafi veitt samþykki sitt en aðrir ekki.

Þá segist Guðlaugur Þór birta  nöfn þeirra lögaðila sem séu gjaldþrota án þess að tala við viðkomandi forystumenn eða slitastjórn en ef viðkomandi aðili sé látinn birti hann ekki nafn hans eða fyrirtækis hans. Nokkra hafi hann ekki náð í. Að auki hafi hann talað við einstaklinga og farið fram á leyfi til að birta nöfn þeirra en það hafi aðrir frambjóðendur ekki gert.

Listinn, sem Guðlaugur Þór birti í dag er eftirfarandi:

Actavis Group hf. 250.000 krónur
Atorka Group hf. 1.000.000
Austursel ehf. 1.500.000
Baugur Group ehf. 2.000.000
Bjarni Ingvar Árnason 250.000
Bláa Lónið 400.000
Borgarverk ehf. 250.000
Brim hf. 300.000
FL Group 2.000.000
Fons hf 2.000.000
Guðmundur Kristjánsson 200.000
Gylfi og Gunnar 200.000
HF Eimskipafélag Íslands 500.000
Intrum á Íslandi 300.000
Kaupþing banki hf. 1.000.000
Landsbanki Íslands 1.500.000
Milestone ehf. 750.000
Sigurður Bollason 500.000
Tékk Kristall 200.000
VBS fjárfestingabanki 30.000
Vínlandsleið ehf. 150.000
Þóra Guðmundsdóttir 500.000
Örninn hjól ehf. 75.000.

Samtals eru þetta 15.855.000 krónur.

Aðrir ónafngreindir styrktu framboðið um 8.975.000 krónur, en um er að ræða 16 aðila, bæði einstaklinga og fyrirtæki, að sögn Guðlaugs Þórs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert