Magni og Móði skulu fjöllin heita

Magni, Móði og Goðahraun urðu til í kjölfarið á eldgosinu …
Magni, Móði og Goðahraun urðu til í kjölfarið á eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. RAX / Ragnar Axelsson

Heitin Magni og Móði hafa verið valin fyrir gígana tvo á Fimmvörðuhálsi. Þá á nýja hraunið að heita Goðahraun. Örnefnanefnd lagði fram tillögu þessa efnis fyrir mennta- og menningarmálaráðherra, sem samþykkti þau fyrir skemmstu.

Örnefnin vísa til goðafræðinnar. Magni og Móði voru synir Þórs, þrumuguðsins úr ásatrú. Það er vel við hæfi, enda er Þórsmörk skammt frá gígunum. Goðahraun var nefnt eftir Goðalandi, en hraunið rennur þangað. Samkvæmt skýrslu nefndarinnar var hugmyndafræðin á bakvið nafngiftirnar sú, að þau myndu ríma við örnefnin sem voru á svæðinu fyrir.

Nefndi tók fyrir um 150 tillögur að heitum, sem bárust hvaðanæva úr þjóðfélaginu. Þar á meðal úr nafnaleik sem var háður á Rás 2.

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kveðst ánægð með heitin. Sömu sögu er að segja af sveitastjórnarmönnum á svæðinu, en heitin voru einnig borin undir þá.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert