Fjórir voru teknir fyrir meintan ölvunarakstur og einn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna síðastliðna nótt á Akureyri.
Bíladagar fóru fram um helgina á Akureyri og að sögn lögreglu varð ölvun mikil og áberandi þegar leið á kvöldin.
Síðastliðin nótt var þó skárri en aðfararnótt laugardags.