Drukknir ökumenn keyrðu á bíla

Merki lögreglu
Merki lögreglu

Tveir ölvaðir ökumenn, í óskyldum málum, voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í nótt eftir að hafa ekið á kyrrstæðar bifreiðar.  Annar þeirra gistir fangageymslur en sá reyndi að stinga af á vettvangi að sögn lögreglu.

Laust eftir klukkan tvö í nótt var þriðji ökumaðurinn handtekinn í Breiðholti. Sá var undir áhrifum fíkniefna og fannst lítilháttar magn af fíkniefnum á honum. 

Nóttin var að öðru leyti róleg í höfuðborginni að sögn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert