Stefnir í góðan júnímánuð

Ferðamenn setja mikinn svip á höfuðborgina en sækja ekkert síður …
Ferðamenn setja mikinn svip á höfuðborgina en sækja ekkert síður út á land og hafa mikinn áhuga á svæðinu næst hinum alræmda Eyjafjallajökli. mbl.is/Jakob Fannar Sigurðsson

Fjöldi erlendra ferðamanna sem hafa heimsótt landið það sem af er júní er sá sami og á sama tíma í fyrra. „Júnímánuður virðist ætla að standa á sléttu miðað við júní í fyrra,“ segir Oddný Þóra Óladóttir, rannsóknarstjóri hjá Ferðamálastofu.

„Þetta er svipað og í fyrra og lítur bara vel út, enda sér maður að það eru allar götur stútfullar af ferðamönnum,“ segir hún í Morgunblaðinu í dag.

Samkvæmt talningu í Leifsstöð fækkaði ferðamönnum um 18,6% í síðastliðnum maí miðað við maí 2009 en allt bendir til þess að júní verði betri og er ekki útilokað að jafnvel verði aukning í mánuðinum milli ára.

Að sögn Robyn Mitchell, sölu- og markaðsstjóra hjá Radisson Blu 1919, hefur júnímánuður glæðst mikið eftir algjört hrun í gistingu í apríl og maí. Nýtingin í júní stefnir í að verða 50-70% en hefur verið 80-90% síðustu ár.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert