Hald lagt á fíkniefnið Khat í fyrsta sinn

Khat.
Khat.

Rúmlega fertugur karlmaður frá Litháen var handtekinn á Keflavíkurflugvelli þann 10. ágúst síðastliðinn, en í fórum hans fundust 24 kíló af fíkniefninu Khat.

Í framhaldi handtók lögreglan á Suðurnesjum rúmlega fimmtugan Breta á gistiheimili í Keflavík, sem talinn var vera samferðamaður Litháans. Sá reyndist hafa um 13 kíló af sama efni í fórum sínum og fundust því samtals 37 kíló af Khat.

Efnið er afurð plöntu frá Norðaustur-Afríku og hefur verið þekkt á Norðurlöndunum síðustu áratugi en mun þetta vera í fyrsta sinn sem yfirvöld á Íslandi leggja hald á fíkniefnið Khat.

Rannsókn lögreglu hefur leitt í ljós að sennilega átti að flytja efnið til Kanada en það hafi ekki verið ætlað  til dreifingar á Íslandi.

Þá hafi komið í ljós að Bretinn hafi komið til landsins í ágústbyrjun, ásamt samlanda sínum, og þeir hafi að öllum líkindum sent fjórar sendingar af efninu til Kanada en óvíst er hversu mikið magn það var.

Ekki er talið að mennirnir hafi átt samstarfsaðila á Íslandi.
 
Rannsókn lögreglu á málinu er að ljúka, en báðir mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi síðan 11. ágúst s.l. og rennur það út þann 20. ágúst nk. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert