Ólga í grasrót vinstri-grænna vegna aðlögunar

Atli Gíslason, VG, í ræðustóli Alþingis.
Atli Gíslason, VG, í ræðustóli Alþingis. mbl.is/Árni Sæberg

Mikil ólga er í grasrót Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs vegna þess að sífellt verði ljósara að Ísland sé ekki í einföldum aðildarviðræðum við Evrópusambandið heldur í aðlögunarferli sem miði að því að laga landið að regluverki og stofnanakerfi sambandsins.

Þá herma heimildir Morgunblaðsins að einn af ráðherrum vinstri-grænna hafi óskað eftir sérstökum þingflokksfundi til þess að ræða þá stöðu sem komin er upp í málinu. Ekki liggur þó fyrir hvenær sá fundur verður haldinn en búast má við að það verði innan skamms.

„Það er mín skoðun að það séu brostnar forsendur fyrir þessu máli. Að þetta séu aðlögunarviðræður,“ segir Atli Gíslason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Hann segir liggja fyrir að Evrópusambandið ætli að koma með nokkra milljarða í það verkefni að gera miklar breytingar á þjóðfélaginu.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert