Starfsmenn mótmæla sameiningu heilsugæslu

Heilsugæslustöð í Mjódd.
Heilsugæslustöð í Mjódd. mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Starfsmenn heilsugæslustöðvarinnar í Mjódd í Breiðholti mótmæla sameiningu stöðvarinnar og heilsugæslustöðvanna í Efra-Breiðholti. Um er að ræða sparnaðartillögu yfirstjórnar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þetta þýðir að ein stöð eigi að þjóna á þriðja tug þúsunda skjólstæðinga. Þetta kemur fram í bréfi sem starfsmenn hafa sent Álfheiði Ingadóttur, heilbrigðisráðherra.

„Föstudaginn 20.  ágúst s.l. vorum við upplýst af yfirmönnum okkar, yfirlækni og yfirhjúkrunarfræðingi um sparnaðartillögur yfirstjórnar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Sögðu þau, að í þeim fælist m.a. tillaga um sameiningu heilsugæslustöðvanna í Efra-Breiðholti og í Mjódd í einu húsnæði hér í Mjóddinni.  Sú stöð myndi þjóna sömu hverfum og nú  þ.e. á þriðja tug þúsunda skjólstæðinga. Væri aðgerð af þessu tagi í samræmi við þá stefnu, sem mótuð hefur verið af ráðuneyti yðar í yðar tíð.

Fundur starfsmanna Heilsugæslunnar í Mjódd, haldinn í dag 24. ágúst 2010, mótmælir þessum áformum harðlega og varar reyndar við þeim, þar sem þær munu leiða til ófarnaðar.

Fyrir þessari skoðun starfsmanna eru fjölmörg fagleg rök.  Grunnur heilbrigðisþjónustunnar, heilsugæslan, byggir á persónulegri þjónustu frekar en annars-, þriðja- og fjórðastigs þjónusta hennar.  Markvisst starf grunnþjónustunnar byggir síður á tæknilegum úrræðum  en þekkingu á félagslegum og efnalegum aðbúnaði fjölskyldnanna. Eftir því sem þjónustueiningarnar verða stærri, sérhæfing starfsmanna meiri og þaulskipulögð viðfangsefnin straumlínulöguð eftir kvörðum hagkvæmni og fjárheimilda, þá dregur úr getu kerfisins til að mæta þörfum skjólstæðinganna, þekking starfsfólks á einstaklingunum þynnist og hugmyndafræði heimilislækninganna um samfellu í þjónustu mun líða undir lok ásamt  með skilgreindum  hópum fyrir hvern heimilislækni. Margvíslegar rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi samfellu í þjónustu á fyrsta stigi heilbrigðiskerfisins   og að erfiðara er að viðhalda henni í stofnunum, sem komnar eru yfir ákveðna stærð. Erlendar rannsóknir styðja þetta og skrif innlendra lækna t.d. Péturs Péturssonar, fyrrum yfirlæknis Heilsugæslunnar á Akureyri.

Fyrir utan að veikja faglega starfsemi mun sameining af þessu tagi gera það erfiðara að halda uppi starfsánægju bæði vegna stærðar og ekki síður vegna vanmáttar, sem starfsmenn munu finna fyrir, þegar ekkert tillit er tekið til skoðana þeirra og framið faglegt hervirki á högum þeirra. Mun það á endanum hitta ráðherrann fyrir sjálfan og þá, sem hann á að þjóna.

Þessi sameiningaráform fara gegn hagsmunum borgaranna og starfsmanna heilsugæslunnar. Það er skoðun starfsmanna Heilsugæslunnar í Mjódd, að þau beri að leggja til hliðar þegar í stað áður en þær valda frekara tjóni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert