Minningarhella um Helga Hóseasson afhjúpuð

Helgi Hóseasson.
Helgi Hóseasson. mbl.is/Brynjar Gauti

Eitt ár verður á mánudag liðið frá andláti Helga Hóseassonar og af því tilefni verður afhjúpuð minningarhella þar sem hann stóð oft við gatnamót Langholtsvegar og Holtavegar í Reykjavík.

Hópur manna ætlar að ganga frá heimili Helga við Skipasundi 48 þennan dag klukkan 17:50 að gatnamótunum þar sem stutt athöfn fer fram klukkan 18.

Að uppsetningu hellunnar standa Vantrú og Facebook-hópur um minnisvarða um Helga Hóseasson. Þór Sigmundsson, steinsmiður, hannaði helluna en vinna við hana og efni er gjöf frá steinsmiðjunni S. Helgason. Hellunni er komið fyrir með góðfúslegu leyfi og aðstoð borgaryfirvalda.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert