Reyndi að blekkja lögreglu en mistókst

Lögreglumenn höfðu um helgina afskipti af ökumanni sem var á ferð á Selfossi um helgina.  Grunur vaknaði um að hann væri ölvaður við aksturinn.  Þegar hann var beðinn að framvísa skilríkjum rétti hann lögreglumönnum skilríki annars manns og ætlaði með því að blekkja lögreglu. 

Við nánari skoðun kom í ljós að maðurinn hafði verið sviptur ökuréttindum og mun hann verða kærður fyrir ölvunarakstur, akstur sviptur ökurétti og hegningarlagabrot með því að hafa notað ófalsað skjal í blekkingarskyni, samkvæmt dagbók lögreglunnar á Selfossi.  

Skömmu fyrir kl. 05:00 á sunnudagsmorgun voru brotnar tvær rúður í Litlu kaffistofunni.  Fjórir ungir menn eru grunaðir um verknaðinn en þeir voru horfnir á braut í leigubifreið þegar lögregla kom á staðinn.  Lögregla veit hverjir mennirnir eru og munu þeir verða kallaðir til yfirheyrslu vegna málsins.

Um kl. 01:00 aðfaranótt sunnudags voru unnin skemmdarverk í Guðnabakarí á Selfossi.  Rúða var brotin á bakhlið og blómapottar framan við verslunina brotnir.  Þeir sem veitt geta upplýsingar um málið eru beðnir að hafa samband í síma 480 1010. 

Hjólreiðamaður varð fyrir bifreið á móts við Breiðumörk 2 í Hveragerði síðastliðið laugardagskvöld.  Við það féll hann af hjólinu og slasaðist á höfði og öxl.  Maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á heilsugæslustöðina á Selfossi til rannsóknar og aðhlynningar.  Maðurinn reyndist ekki alvarlega slasaður.  Þegar slysið átti sér stað var farið að skyggja en ekkert ljós var á hjólinu né glit og maðurinn var ekki með hjálm. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert