Um 250 kg sprengja

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar með tundurduflið, sem er engin smásmíði.
Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar með tundurduflið, sem er engin smásmíði. mynd/Alfons

Búið er að gera tundurdufl óvirkt sem togbáturinn Skinney fékk í botnvörpuna við veiðar suður af Snæfellsjökli í morgun. Að sögn Landhelgisgæslunnar voru um 250 kíló af sprengiefni inni í duflinu, sem er frá tímum síðari heimsstyrjaldarinnar.

Vel gekk að aftengja sprengjuna sem er nú komin á land á Rifi, en skipið lagðist við bryggju um kl. 14. Nú verður henni eytt á afskekktu svæði. Þar með lýkur hennar hlutverki í stríði sem er heyrir sögunni til.

Skv. upplýsingum mbl.is þá var sprengihleðslan heil. 

Tundurduflið verður flutt á afskekktan stað þar sem því verður …
Tundurduflið verður flutt á afskekktan stað þar sem því verður eytt. mynd/Alfons
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert