Landsmönnum fjölgar ekki

mbl.is/Kristinn

Í lok september bjuggu 318.200 manns á Íslandi, 160.000 karlar og 158.200 konur. Engin fjölgun var frá fyrra ársfjórðungi. Erlendir ríkisborgarar voru 21.500 í lok 3. ársfjórðungs 2010. Á höfuðborgarsvæðinu einu bjuggu 201.900 manns.

Þetta kemur fram í nýjum tölum, sem Hagstofan birti í dag.  Á þriðja ársfjórðungi 2010 fæddust 1300 börn, en 490 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust frá landinu 510 einstaklingar umfram aðflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 920 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 410 fleiri en þeir sem fluttust brott frá landinu. Jafnmargir karlar og konur fluttu frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara, en þangað fluttust 650 manns í ársfjórðungnum af 1900 alls. Næstflestir fóru til Noregs eða 540. Flestir erlendir ríkisborgarar fluttust til Póllands eða 230 manns af 640.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (400), Noregi (180) og Svíþjóð (140), samtals 710 manns af 980. Erlendir ríkisborgarar voru hins vegar flestir frá Póllandi, 290 af alls 1100 erlendum innflytjendum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert