Reiðarslag fyrir Flateyri

Tómur vinnslusalur fiskvinnslufyrirtækisins Eyrarodda á Flateyri síðdegis í gær.
Tómur vinnslusalur fiskvinnslufyrirtækisins Eyrarodda á Flateyri síðdegis í gær. mbl.is/Halldór

Fimmtíu og sjö manns var sagt upp á Vestfjörðum í gær. Eyraroddi, fiskvinnslufyrirtæki á Flateyri, sagði upp öllum starfsmönnum sínum, fjörutíu og tveimur talsins. Ósafl, sem sá um gerð Bolungarvíkurganga, sagði upp fimmtán starfsmönnum.

Daníel Jakobsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, segir 203 manns nú búa á Flateyri. Ef tekið er tillit til aldurs hefur því tæpum þriðjungi vinnubærs fólks á Flateyri verið sagt upp. Í umfjöllun um ástandið á Flateyri í Morgunblaðinu í dag, segir Daníel uppsagnirnar reiðarslag fyrir samfélagið þar.

Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga, telur ríkisstjórnina ekki hlusta á tillögur þeirra sem eru í tengslum við atvinnulífið á Vestfjörðum. „Þetta er það sem ég kalla eyðibyggðastefnu ríkisstjórnarinnar. Það er allt stopp í atvinnumálum, það er ekkert hlustað á tillögur sem koma frá verkalýðshreyfingunni sem er þó í tengslum við atvinnulífið og í tengslum við fólkið sem er þarna að vinna.“
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert