Handteknir vegna líkamsárásar

Maður var handtekinn í gærkvöldi, grunaður um fíkniefnamisferli. Var hann látinn laus að lokinni skýrslutöku. Einn maður var handtekinn vegna ölvunarástands og gisti hann fangageymslur í nótt. Þetta kemur fram í upplýsingum frá lögregunni á höfuðborgarsvæðinu. 

Tilkynnt var um minniháttar líkamsárás í gærkvöldi og voru tveir menn handteknir. Var þeim sleppt að lokinni upplýsingaöflun. Þá var tilkynnt um rúðubrot í nótt en ekki er vitað hver var að verki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert