Fjölmenni á skíðum á Siglufirði

Margir nýta páskana til þess að fara á skíði. Um 800 manns heimsóttu skíðasvæðið á Siglufirði á Skírdag og jafnvel enn fleiri í dag þar sem skíðasvæðið í Hlíðarfjalli á Akureyri er lokað. Er svæðið opið til klukkan 16 dag. 

Skíðasvæðin í Bláfjöllum og í Skálafelli eru lokuð í dag vegna hvassviðris. 

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Siglufirði í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert