Tekið á því úti í snjónum

Þónokkur fjöldi fólks lét ekki snjókomuna á sig fá og tók á því á Boot Camp æfingu í Elliðaárdalnum eldsnemma í morgun.

Sumarið 2012 flutti Boot Camp í nýtt 1.400 fermetra húsnæði í Elliðaárdalnum, en í nýjum höfuðstöðvum er meðal annars boðið upp á Boot Camp, Crossfit, barna- og unglinganámskeið, líkamsrækt fyrir ófrískar konur, lyftingasal, teygju- og jógatíma og barnapössun. 

Ljósmyndari mbl.is fylgdist með átökunum í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert