Innkalla krullujárn

Neytendastofa vill vekja athygli á innköllun á krullujárni frá Lee Stafford, LSHT09, Argos Catalogue, No. 151 / 4715, af gerðinni Jumbo Lazy Curl & Nourish. Ástæða innköllunarinnar er vegna hættu á rafstraum.

Viðkomandi vara hefur ekki verið seld á Íslandi svo að vitað sé en kann að hafa borist til landsins með öðrum leiðum, segir í frétt á vef Neytendastofu.

Neytendastofa hvetur þá neytendur sem eiga þessa vöru að hætta notkun hennar nú þegar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert